|
|
19.12.2006 00:20:04 / olig
»
28.08.2006 19:45:57 / olig
»
25.07.2006 12:12:26 / olig
Já langt síðan síðast. En ég hef nú ekki keppt nema einu
sinni síðan 16. júní og hefur það sjaldan verið minna á þessum tíma
sumars á ferlinum bara held ég En ætla að bæta úr því um
næstu helgi en þá er MÍ aðalhluti í Laugardalnum í Rvk.
keppi þar í 110gr, lang og þrí, sleggju, kúlu og 4x100 og
4x400m. En það hefur nú samt ýmislegt annað gerst hjá
mér í hinu daglega amstri hversdagsleikans Ég er t.d. búinn
að flytja mig um set á Laugarvatni, farinn úr Hrísholtinu og yfir í
Skólatún 3a (Eystra Hvarf) sem er húsnæði ML og blasir við ykkur er
þið keyrið inn á Laugarvatn (komið frá Selfossi) þannig
að nú verðið þið (allir mínir vinir)bara að kíkja í heimskókn til
mín þegar þið eigið leið um Bláskógabyggð.
Annars gengur lífið sinn vanagang hjá mér. Kristófer minn
er nýfarinn frá mér til mömmu sinnar og er núna á Sigló á
reiðnámskeiði. En við sjáumst nú innan ekki svo mjög langs
tíma
Kristófer! textinn sem þú skrifaðir til mín í gær kom EKKI inn á
síðuna mína. Þú verður að vinstrismella á "enginn hefur sagt
sína skoðun" hér fyrir neðan, og skrifa svo þar í kassann niðri
texta, pikka svo inn tölurnar þar fyrir neðan í réttri röð og slá á
staðfesta. EN PASSAÐU ÞIG Á ÞVÍ AÐ SVERTA TEXTAN ÞINN OG
HÆGRI SMELLA SVO (á textann) OG ÝTA Á COPY. Þetta er gott að
gera svo að maður glati ekki textanum sem maður er búinn að skrifa,
ef vistunin á honum inn á síðuna heppnast ekki í fyrstu
tilraun. Byð annars að heilsa á Sigló Kristó minn og við
sjáumst fljótlega. kv. pabbi.
Annars er best að fara að drýfa sig á æfingu því ég verð með
æfingu í kvöld á Hvolsvelli kl. 17:00 - 19:00. og svo koma Jóndi
bróðir og fjölskylda frá Noregi í kvöld í smá sumarfrí á
klakann.
En byð að heilsa í byli og gangið hægt um gleðinar dyr og áfram
Liverpool.
p.s. Minni á að ég verð með mína árlegu kastþraut í haust
(líklega föstud. eða laugard. 1. eða 2. sept. takið hann frá
þ.e. allir kastarar sem hafa tekið þátt áður sem og fleiri sem
áhuga hafa.  
kveðja Óli Guðmunds.
»
16.06.2006 23:32:58 / olig
Halló halló, langst síðan síðast og verður það áfram. Var að
skrifa inn á bloggið en missti það allt út Æfingar
ganga þokkalega, svolítið erfitt að drulla sér stað núna þessa
dagana en það gengur yfir .
Kristófer er hjá mér núna og er með mér í leikjanámskeiðunum sem
ég er með hjá HSK. Gengur vel.
En hafið gleðilegan Þjóðhátiðardag og gangið hægt um gleðinar
dyr. Baráttukveðjur til Þóris Sigmundar Þórissonar í
Amerkíkunni.
kveðja Óli Guðm. og Kristófer Rúnar 
»
30.05.2006 11:55:10 / olig
Já komið þið sæl. Já maður er bara duglegur, ekki nema 12 dagar
síðan síðast  En lífið gengur sinn vanagang nema hvað æfingarnar
hafa verið pínu í formi endurhæfingar en hnjaskið í lærinu mínu sem
er búið að vera í rúmar 2 vikur er allt að koma til. Er farinn að
geta hlaupið á þokkalegri ferð  Var í síðasta
sjúkraþjálfunartímanum hjá Oddu á MT stofunni  En já Kristófer
Rúnar minn er hjá mér þessa dagana og verður fram í næstu
viku  í blíðunni á Laugarvatni. Hann verður bara í skólanum á
Laugarvatni, en hann þekkir krakkana þar þannig að það er ekkert
mál fyrir hann að detta þar inn. Það sem er eftir af skólanum er
ekki í formi venjulegrar kennslu heldur vorferðalaga,
útivistardaga, tiltektar, ratleikja ofl. sem er allt gott og gilt
en persónulega finnst mér að skólinn eigi að vera búinn um miðjan
maí (allavega í sveitunum) en ekki 8. maí eins og nú er. Á morgun
er einmitt vorferð fyrir hans aldurshóp og verður farið og skoðað
Gullfoss og Geysi, farið að Böðmóðsstöðum (sveitablómabýli  ofl.
Það var mikið að gera um s.l. helgi: Útskrift var í ML á
laugardeginum ásamt því að sveitastjórnarkosningar fóru fram.
Úslitin voru svona eftir bókinni (4-3 í Bláskógabyggð) Gott hjá
Birni Inga í Rvk.  minnst fylgi = einna mestu völdin í
Rvk.  . Ég var nú á Selfossi á kosningakvöldið, ætlaði á
Laugarvatn um kvöldið á Júbílantaball í ML en nennti ekki þegar á
hólminn kom  Daginn eftir var svo ferming hjá Antoni Kára í
húsakynnum Íþróttafræðasetursins á Laugarvatni. Fín veisla.  En í
miðjun klíðum í önnum helgarinnar þá fékk ég reyndar miður
skemmtilegar fréttir frá Bjössa Arngríms. varðandi hann Þóri
Sigmund hennar Guðrúnar Erlu frænku minnar en þau búa í USA. Hann
greindist með heilaæxli s.l. föstudag  en Þórir er ótrúlega
hress en hann er að fara í skurðaðgerð í dag kl. 18:00 þar sem á að
fjarlæga æxlið. Það er á "góðum" stað ef hægt er að tala um það;
rétt ofan og aftan við v-eyrað, grunnlægt. Við sendum að sjálfsögðu
Þóri og fjölskyldu okkar sterkustu orkustrauma. Áfram Þórir, nú er
að "taka áðí". Annars er ég nánast búinn að ganga frá í
Grunnskólanum þ.e. einkunum, skýrlsu um kennt og lesið efni o.þ.h.
En segi þetta gott í bili og við Kristófer byðjum að heils, já og
farið varlega í umferðinni   
»
18.05.2006 09:08:29 / olig
Hæ hæ, já ég skrifa bara þétt núna, ekki nema 8 dagar síðan
síðast Tognaði í hægra læri á fimmtudaginn fyrir viku
þannig að ég er nú í endurhæfingu hjá sjálfum mér og
sjúkraþjálfara. Get lyft og hoppað og kastað þannig að það er
ekki eins og ég sé að hvíla þó svo að maður fari rólega í
hlaupin Tók einmitt æfingu í gærkvöldi í blíðu veðri þar
sem ég hljóp 4 km nokkuð rösklega, hlaupdrillaði, hljóp
hraðaukningar, kastaði kúlu og kringlu, lyfti smá og hoppaði og tók
svo fitness, 3 sett í lokin. Nokkuð sáttur við æfinguna og
gat bara hlaupið nokkuð rösklega hraðaaukningarnar
Ég fór á opinn stjórnmálafund framboðana í Árborg
s.l. þriðjudagskvöld en fundurinn var haldinn í F.SU.
Selfossi. Ágætur fundur þó svo að hann hafi verið svolítið
þungur v/fyrirspurnafyrirkomulagsins, ekki mikið um "skot og
skæting". En persónulega (ef maður lítur hlutlaust á
frammistöðu frambjóðandana) fannst mér X-D standa sig slaklegast en
hin framboðin svona svipuð. X-D svolítð vængbrotnir eða
höfuðlausir v/ "umferðarmáls E.A." en það sem stendur samt í
minningunni um fundinn er vonin um það að allir fari varlega í
umferðinn í næstu framtíð 
Heyrðu já nú er ég búinn að ganga frá prófum o.þ.h.
í ML og skila inn og nú er bara að ganga frá í Grunnskólanum
en hann er ekki búinn fyrr en næsta haust!! nei jók, um 10
júní n.k. sem er náttúrlega allt of langt fram á
vorið/sumarið
En já það er best að fara að gera eitthvað
viturlegt. Júróvision í kvöld og Fokking Silvía Nótt að fara
að gera allt fokkingvitlaust í Aþenu. Spái henni 12 sæti í
forkeppninni i kvöld og að hún fari þ.a.l. ekki áfram í úrslit
En nóg um það best að fara að drífa sig á æfingu, sjáumst og
heyrumst og allt. Gangið hægt um gleðinnar kosningadyr eða
þannig og kjósið nú rétt hvað sem það nú er
Kveðja Óli Guðm. sentimetri, íslandi.
»
10.05.2006 23:10:24 / olig
»
28.03.2006 23:33:47 / olig
»
16.03.2006 11:23:57 / olig
»
09.03.2006 21:18:59 / olig
»
02.03.2006 21:55:41 / olig
Hæ hó og dillidilli dó já frekar langt síðan síðast. Það
gekk bara vel á MÍ aðalhluta: ég keppti í 5 greinum auk þess sem
við í HSÞ sveitinni hreinlega rúlluðum 4x400m boðhlaupinu upp og
urðum íslandsmeistarar á nýju íslandsmeti 3:29,?? Vann
svo grindahlaupið á 8,46sek og er það bæting í vetur . Svo fékk ég
eitt silfur í hinum greinunum og tvö brons og bara vel sáttur með
þessa helgi þ.e. 18. og 19. febrúar s.l. Var með
Kristófer þessa helgi sem var bara gaman en akkurat með an ég var
að keppa þá var hann hjá Hauk bróður og dóttur hans Kristínu
Láru
Helgina eftir þá fór ég sem þjálfari og liðstjóri HSK liðsins á
MÍ 12 - 14 ára í Rvk. Laugardalshöll. Endaði með 15
keppendur, þ.e. ætlaði að vera með all að 30 keppendur en það voru
veikindi og fleira sem kom í veg fyrir það. Fengum samt 10
verðlaun og urðum í 5 sæti í heildarstigakeppninni. Selfoss
var með okkur á mótinu og gistu með okkur þ.e. mitt gamla
félag. Samveran gekk mjög vel.
Jóndi bróðir og fjölskylda voru í heimsókn vikuna 19. - 27. feb.
og var frábært að hitta þau. Þarf að fara að heimsækja þau
til Norge áður en þau koma heim. En þetta að hitta þau var
bara gaman, Kristófer minn og frændur hans voru duglegir að leika
sér saman 
Nú gegngur lífið sinn vanagang, kenna, æfa, éta, sofa. Er
að komast á skrið aftur í æfingunum eftir keppnistímabilið og er
það bara góð tilfinning Fer að öllum líkindum ekki
erlendis í æfingabúðir þetta árið verður skrítið, en stefni
þess í stað að fara á næsta ári sem undirbúning fyrir Landsmót UMFÍ
sem verður í Kópavogi og það verður bara stuð.
Núna var ég að koma af æfingu þar sem uppistaðan var: langir
interwallsprettir (bara þokkalega frískur þar) og
Þyngdarboltaköst. Skaut svo haug af skotum á körfu á eftir og
hitti ég best úr 8 þriggjastiga skotum í 10 tilraunum í
röð    Svo fór ég í Tjaldó og fékk mér að borða pítu,
franskar og grænmeti og drakk gulan topp með, helvíti gott marr.
Fór þangað í tilefni af opnun Tjaldó aftur eftir vetrarfrí.
En já fer nú að segja þetta gott. Er að fara í Hellaskoðunarferð
á morgun með framhaldsútivistaráfanganum í ML og svo fer ég í Rvk
að ná í Kristófer minn og verður þetta örugglega fín helgi
hjá okkur feðgum. 
Byð annars að heilsa ykkur og fariði nú vel með ykkur hvar sem
þið eruð, bæjó Óli G íslandsmethafi í 4x400m hlaupi
innanhúss
»
17.02.2006 00:19:59 / olig
»
11.02.2006 18:58:59 / olig
»
22.01.2006 03:12:18 / olig
»
15.01.2006 22:29:47 / olig
Halló halló þá er skemmtilegri helgi lokið og fyrsta móti
vetrarins hjá mér yfirstaðið og heldi ég að hafi bara gengið
bærilega. Já og keppni undir merkjum nýs félags þ.e.
H.S.Þ. Já ég sprikklaði í 5 greinum og var eins og áður sagði
þokkalega útkoma: Langstökk (stokkið plankalaust): 6,63m nr. 1-
60mgr. 8,64sek. nr. 1- kúla: 14,33m nr. 2. - 60m hlaup 7,33sek
(7,51sek. daginn fyrir gamlársdag) og 200m hlaup: 23,32sek
(23,81sek 30. des. s.l.) þannig að já bara ok 
Svo var ég líka að fylgja 4 krökkum þarna sem ég er að þjálfa og
gekk það upp og ofan en góð reynsla fyrir þau þar sem MÍ fara að
skella á.
Á sunnudeginum kepptu 12 ára og yngri og var ég þar með einn
keppanda hann Kristófer Rúnar minn. Hann keppti í 4 greinum: 2. í
langstökki og 60m hlaupi, 5. í kúlu og svo loks 3. í 600m hlaupi
bara flott hjá mínum manni Svo að loknu móti þá fórum við
feðgar á skauta í 2 klst og var það góður endir á frábærum
degi
En svo gengur lífið bara sinn vanagang; æfingar, kennsla,borða,
horfa smá á Sjónvarp og sofa
Segi þetta gott í bili og hafið það ávallt sem best, kveðja Óli
G
»
Síður: 1 2 3 4
|
|